Hvað er í boði?

Uppsetning á vef í Drupal vefumsjónarkerfi

Drupal  er "open source system" vefumsjónarkerfi (CMS). Það þýðir að ekki þarf að greiða fyrir kerfið sjálft heldur einungis uppsetningu þess og viðhald ef þess er óskað. Ekki er greidd nein leiga heldur.

Ég get séð um að hanna vefinn frá grunni, þ.e. bæði útlit og virkni ásamt því að setja hann upp í Drupal. Ég get einnig tekið við fullhönnuðum vef og sett hann upp í vefumsjónarkerfið.

 

Flash borðar / auglýsingar

Flash borðar er nú alsráðandi sem auglýsingaform á vefnum. Ef þú sérð auglýsingu á vefnum þá eru allar líkur á því að hún sé gerð í Flash. Flash bíður upp á mikla möguleika í framsetningu texta, mynda og jafnvel myndbanda.

Ég get séð um hönnun frá grunni eða tekið við grafík og séð um uppsetningu í Flash.

 

HTML / CSS / jQuery

Ertu með tilbúið útlit á vef? Ég get séð um að yfirfæra photoshop skjal (eða svipuð grafísk skjöl) yfir í fullbúinn, virkan vef. Ég sé um alla þá forritun sem til þarf.
Grind vefsins er gerð með HTML, útlitið  sett upp með CSS og að lokum er vefurinn gerður líflegri með jQuery ef þörf krefur.

 

Myndbönd / Videó

Tek að mér að klippa saman myndbönd og gera þau tilbúin til birtingar á vefnum.

 

Kynningarefni

Tek að mér uppsetningu á allra handa kynningarefni hvort sem það eru veggspjöld (posterar), bæklingar eða auglýsingar.

 

Hvað sem er !

Upptalningin hér að framan er langt því frá tæmandi fyrir það sem í boði er. Ef þú hefur eitthvað verkefni sem vinna þarf sem tengist margmiðlun á einhvern máta þá endilega hafðu samband.