Hvað er Drupal?

Vefumsjónarkerfi

Drupal er vefumsjónarkerfi (Content management system) þ.e. hugbúnaður sem notaður er til að skipuleggja og birta efni á vefsíðum. Þetta efni getur verið t.d. í formi texta, mynda, tónlistar eða myndbanda.

Drupal geymir allt efni í gagnagrunni (MySql database). Gagnagrunni er skipt upp í töflur (tables) og síðan er töflum skipt upp í raðir (rows). Hver röð er samansett úr tengdum svæðum (fields). Sem almennur notandi Drupal þá þarfu ekki að hafa neina kunnáttu í beinni notkun gagnagrunna því þú kemur aldrei til með að þurfa að vinna beint í grunninum. Drupal býður upp á mjög einfalt notendaviðmót til að vinna í efni vefsins.

Þema

Útliti vefsins þ.e. litum, leturgerð, og staðsetningu einstakra hluta hans er stjórnað af svokölluðu þema (theme).  Hægt er að nota það þema sem fylgir með Drupal kerfinu við uppsetningu eða hala niður einhverju af þeim þemum sem finnast á vefnum. Ef þú þarft að aðlaga útlitið að þínum þörfum þá er nokkuð auðvelt að breyta þemunum og jafnvel er hægt að ráðast í það að búa til nýtt frá grunni. Slíkt krefst þó þekkingar á PHP, HTML og CSS.

Efnistegundir

Drupal byggir á svokölluðum efnistegundum (content types). Kerfið kemur með nokkrum slíkum s.s fyrir síðu (page) eða frétt (story). Einföld efnistegund samanstendur af titil (title) og megintexta (body). Hægt er að búa til eins margar efnistegundir eins og þörf er á og eru nær engin takmörk fyrir því hvernig þær eru uppbyggðar. Sem dæmi þá væri hægt að gera efnistegund sem samanstæði af titil, mynd, megintexta, tengli og link á youtube myndband.
Sá möguleiki að geta búið til efnistegundir er að mínu mati einn af megin kostum Drupal sem vefumsjónarkerfis.

Modules

Með grunnuppsetningu Drupal er í sjálfu sér hægt að gera ýmislegt en það kemur fljótt upp þörf fyrir virkni sem grunnkerfið bíður ekki uppá. Þá kemur til skjalana annar kostur Drupal þ.e. modules (hef enga góða íslenska þýðingu). Modules eru í raun eins og legokubbar, þau bæta nýrri virkni við kerfið og þannig getur þú byggt upp kerfi sem hentar þínum óskum og þörfum. Sem dæmi um module er imagecache. Þetta module gerir notandanum kleift að skilgreina stærðir fyrir myndir. Þessar skilgreiningar er síðan hægt að nota til að birta mynd á vefnum. Þetta gerir það að verkum að einungis er þörf á að hala upp einni útgáfu af mynd og láta kerfið svo búa til þær útgáfur af henni sem þörf er á.
Það eru tvö module sem eru nánast alltaf notuð en það eru CCK (Content construction Kit) og Views,

Fyrir hvern er Drupal?

Eins og áður er nefnt þá er Drupal mjög öflugt vefumsjónarkerfi. Það hefur hinsvegar þann galla að það tekur smá tíma að læra að setja það upp og stilla það svo að það virki eins og það á að gera. Þetta gerir það að verkum að Drupal myndi ekki vera fyrsta val fyrir þá sem ekki hafa mikla tölvukunnáttu, kjósi þeir að setja upp sitt eigið vefumsjónarkerfi sjálfir. Í slíkum tilfellum myndi Wordpress eða Joomla henta betur.
Hinsvegar myndi ég telja að Drupal væri fyrsti kostur fyrir þá sem hafa atvinnu sína af því að setja upp vefi fyrir aðra því þegar fyrstu skrefin eru stigin og grunnþekkingin er til staðar þá eru allir vegir færir með Drupal. Þú getur sett upp stóra sem smá vefi og gert þá þannig úr garði að þeir verði þægilegir í notkun og ekki síst í viðhaldi.

Það er ekki nokkrum vafa undirorpið að fyrir nútíma vef þá er vefumsjónarkerfi algjör nauðsyn. Það er í fáum tilfellum hægt að bjóða upp á vefi sem krefst þess að sá sem heldur utan um efni hans, þurfi að kunna HTML og CSS og þurfi sífellt að grufla í því til að breyta hinum minnstu smáatriðum. Slíkur vefur staðnar mjög fljótt

Segðu þína skoðun

Efni þessa reits mun aldrei verða afhent þriðja aðila né birt á nokkurn hátt

Viltu vita meira?

Sendu fyrirspurn og ég svara
eins fljótt og auðið er.