Um Bippa

Stutt um mig

Ég er fæddur og uppalinn á Skaganum og bý þar ennþá ásamt fjölskyldu minni, konu og tveimur börnum. Ég er menntaður margmiðlunarhönnuður og sjúkraþjálfari (merkileg blanda).

Sumarið 2006 lét ég draum minn rætast og tók mig upp ásamt fjölskyldu minni og flutti mig til Danmerkur að læra margmiðlunarhönnun. Þó svo að ég hafi starfað sem sjúkraþjálfari í 8 ár þá hefur margmiðlun átt hug minn s.l. 10 til 15 ár.


Námið í Danmörku gekk framar vonum og lauk ég því með hæstu mögulegu einkunn þ.e. ég fékk 12 fyrir öll prófverkefni.
Minn styrkur sem margmiðlunarhönnuður liggur í vef-forritun, aðallega “front-end” forritun. Ég er mjög vel að mér í XHTML, CSS, “cross browser compatibility” og stöðlum því tengdu. Ég hef nú tveggja ára reynslu í að setja upp vefi í Drupal vefumsjónarkerfi.

Í lokaverkefni mínu í margmiðlunarhönnun skrifaði ég ritgerð um “Rich Internet Application” og út frá því þróaði ég vef-forrit (web application) sem heldur utan um mynda gallerý á vefnum. Ég notaði Adobe Flex builder og Actionscript 3 til að búa til þetta forrit og öðlaðist því þónokkra reynslu og þekkingu á Adobe Flex.

Áhugamál

Margmiðlun er mitt aðaláhugamál og skemmtilegast finnst mér að sitja við tölvuna og vinna að hinum og þessum verkefnum. Fyrir utan margmiðlun þá hef ég áhuga á hinu og þessu allt frá skokki að eldamennsku og mörgu þar á milli s.s ljósmyndun, íþróttum, fréttum og bíómyndum
 

Hvað geri ég núna

Eftir að hafa búið í Danmörku í 3 ár við nám og störf þá flutti ég heim til Íslands í ágúst 2009. Síðan þá hef ég starfað sem sjálfstætt starfandi vefforritari.
Ég hef mikið unnið við að setja upp vefi í Drupal CMS og hef ég þá aðallega verið í samstarfi við stórt hönnunarfyrirtæki í Danmörku, Designit en ég starfaði fyrir það fyrirtæki í 8 mánuði árin 2008 - 2009.
Ég hef einnig tekið að mér tilfallandi verkefni í gerð kynningarefnis á prenti og Flash bannerum.